Undanfarið ár höfum við unnið meir og meir með lausnir frá Danfoss Power Solutions.
Sem dæmi um verkefni má nefna stýribúnað fyrir merkjabreytingar milli Danfoss stjórntækja og Bosch-Rexroth vökvakerfis.
Forritun og hönnun á stjórnbúnaði fyrir Danfoss vökvakistur. Bæði yfir analogue og CAN BUS SAE J1939.
Lausnir sem við bjóðum uppá eru til dæmis:
Fjarstýringar og móttakarar fyrir t.d. krana, tromlur, spil ofl.
IP67 iðntölvur fyrir erfiðustu aðstæður, fyrir stýringu á Danfoss PVG kistum, hefðbundnum PWM vökvalokum, lestur skynjara ofl.
Aðstoð og ráðgjöf við lausnir á vandamálum og lausnum sem tengjast rafstýrðum vökvakerfum ofl.