Bjóðum upp á lausnir fyrir vökvakerfi í Danfoss Power Solutions.
Meðal þess sem við getum boðið upp á er hönnun, forritun og útvegum búnað til að endurnýja eldri Danfoss kerfi í krönum, skrúfubúnaði sem og öðrum eldri tækjum sem nota vökvakerfi frá Danfoss Power Solutions.
Einnig bjóðum við upp á eftirlitskerfi fyrir vélbúnað til að fylgjast með rakamagni í vökvakerfum, sem getur sparað tíma og fé og gefið til kynna um leka inn á vökvakerfi í skipum (til dæmis vökvamótorum í bógskrúfum) og öðrum vélum sem vinna í kringum vatn.
Einnig bjóðum við upp á upplýsingaskjái fyrir vélstjóra til að taka eftirlitsskýrslur sem tengist beint við J1939 CAN Bus á flestum skipsvélum.
Verkefni sem við höfum unnið:
– endurnýjun stjórntækja á þörungasláttuprömmum fyrir Thorverk á Reykhólum
– Samtengingu milli Bosch-Rexroth kerfis og danfoss stjórnbúnaðar í Guðbjörg GK9 sem var nýsmíði frá Skipasmíðastöð Njarðvíkur.
– Ásamt öðrum smávægilegri verkefnum við bilanagreiningu vökvaspólna ofl.