Bjóðum upp á ísetningar á handvirkum úrhleypikerfum, bæði mekanískum sem og rafstýrðum.
Mekanísk kerfi eru með kistu með lokum inn í bíl og einum mæli og handvirkt þarf að mæla hvert dekk fyrir sig.
Rafstýrð kerfi eru með kistu og mæli sem mælir öll dekk samtímis og rofum inn í bíl til að hleypa úr eða dæla í.
Sérsníðum lausnir í hvern bíl fyrir sig og gefum föst verðtilboð eftir skoðun á ökutæki og eru kerfin oftast á um 200-300þús kr með ísetningu. Ísetningar taka um 1-2 daga fyrir úrhleypikerfi en auka tími leggst á ef beðið er um ísetningu á dælu og eða öðrum aukabúnaði.